PrentaE-mail
Leiðarvísir um uppbyggingu sjálfsaga (nemendabók)

Barnið mitt er gleðigjafi
Sjá stóra mynd


Barnið mitt er gleðigjafi

Verð á einingu (piece): 1.990,- kr.

Ertu með fyrirspurn um þessa vöru

Bók fyrir foreldra  (NÝ BÓK)

Hverjar eru grundvallarþarfir barnsins míns? Hvernig er hægt að leysa úr átökum þannig að það gagnist báðum? Get ég kennt barninu mínu sjálfsaga og sjálfsuppbyggingu?

Í bókinni „Barnið mitt er gleðigjafi“ fjallar Diane Chelsom Gossen um uppbyggileg og gefandi samskipti barna og fullorðinna. Bókin er happafengur fyrir alla þá sem vilja skilja þarfir barna betur og hjálpa þeim að læra að uppfylla sálrænar þarfir sínar á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt. Hugmyndir Diane henta vel fyrir foreldra, kennara og aðra sem hafa áhuga á að að leggja sitt af mörkum við að ala upp sterka einstaklinga sem geta með sveigjanleika og öryggi mætt sálrænum þörfum sínum í flóknum og ófyrirsjáanlegum heimi.

 

UMSAGNIR UM BÓKINA:

Í rúm fimm ár hef nýtt mér aðferðir Diane Chelsom Gossen, bæði sem skólastjórnandi og einnig sem foreldri tveggja barna, en um þessar aðferðir er fjallað í bókum hennar Uppeldi til ábyrgðar og Sterk saman. Bókin Barnið mitt er gleðigjafi er sérstaklega skrifuð fyrir foreldra en fyrri bækur frá Sunnuhvoli hafa einkum verið ætlaðar starfsfólki í skólum. Þessi bók gefur foreldrum tækifæri til að tileinka sér uppbyggilega leið við að kenna börnum sjálfsaga. Jafnframt má búast við auknum árangri og bættum samskiptum heimilis og skóla þegar svipuðum uppeldisaðferðum er beitt á báðum stöðum.

Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Ingunnarskóla.

 

Daglega hugsum við um börnin okkar. Þau valda okkur heilabrotum frá fyrstu tíð og fram á grafarbakkann enda naumast til ánægjulegra umhugsunarefni. Það hvernig heilsteyptur og farsæll einstaklingur verður til, við samspil hvata og langana, erfða, upplags og umhverfis, er bæði heillandi og krefjandi úrlausnarefni sérhvers foreldris. Hvert og eitt okkar er á vissan hátt sérfræðingur í sínu barni en það getur engu að síður verið afar gagnlegt að fletta í góðum bókum fagfólks sem helgað hefur líf sitt rannsóknum á hegðun barna. Þetta er ein slík bók, hvetjandi, vekjandi og jákvæð.

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og faðir tveggja stúlkna.

 

Mörgum foreldrum finnst þeir vera staddir í blindgötu í samskiptum við börn sín. Þeir skilja ekki af hverju og þekkja ekki leiðina út. Þessi bók veitir dýrmætan skilning og gagnleg verkfæri til að takast á við foreldrahlutverkið á uppbyggilegan hátt, bæði fyrir foreldra og börn.

Fanny Kristín Tryggvadóttir, kennari og móðir þriggja barna.

 

Eitt af því sem hreif mig við lestur bókarinnar var áherslan á að efla börnin til dáða. Höfundur segir að hlutverk foreldranna sé að hjálpa börnunum að öðlast styrk. Þetta jákvæða og heilbrigða viðhorf er styrkur þessarar góðu bókar.

Hafliði Kristinsson, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi.

 

Bókin, Barnið mitt er gleðigjafi eftir Diane Chelsom Gossen, er gagnleg öllum sem sinna uppeldi. Auk þess geta flestir lært margt af lestri bókarinnar um mannleg samskipti, en bókin byggir á tveimur grundvallaratriðum þessara samskipta; gagnkvæmri tillitssemi og skyldu allra að taka ábyrgð á sjálfum sér.

Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri.

 

 








Karfan þín

VirtueMart
Karfan þín er tóm.