PrentaE-mail
Undirstöður uppbyggingarAð sætta sjónarmið

Leiðarvísir um uppbyggingu sjálfsaga (f. kennara)
Sjá stóra mynd


Leiðarvísir um uppbyggingu sjálfsaga (f. kennara)

Verð á einingu (piece): 1.980,- kr.

Ertu með fyrirspurn um þessa vöru

Normal 0 false false false MicrosoftInternetExplorer4 st1:*{behavior:url(#ieooui) } /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:"Table Normal"; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-parent:""; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:10.0pt; font-family:"Times New Roman"; mso-ansi-language:#0400; mso-fareast-language:#0400; mso-bidi-language:#0400;}

Leiðarvísir um Uppbyggingu sjálfsaga

Bók fyrir kennara unglingadeilda

 

Inngangur        

Þessi bók var samin til að aðstoða unglingadeildarkennara (9. - 12. bekk í Kanada) við að kenna Uppbyggingu. Í íslenska skólakerfinu hentar hún fyrir sama aldur í efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla. Hjá okkur hefur tilhneyging verið í þá átt að fela sérstökum lífsleiknikennurum að kenna samskipti, en hér er kynnt leið til að allir kennarar geti sett samskiptin í kennslustofunni á dagskrá, hvaða fag sem þeir annars kenna.  Uppbygging er þaulreynd aðferð við að kenna sjálfsaga og hún hefur eftirfarandi kosti:

 

  Uppbygging sjálfsaga styrkir sjálfsmynd nemenda því þeir læra að leysa samskiptavandamál.

  Uppbygging er áhrifaríkari en hefðbundnar aðferðir umbunar og refsinga, því aðferðir hennar taka málin fastari tökum en eru á sama tíma vinsamlegri fyrir alla.

  Uppbygging er gildismiðuð fremur en reglumiðuð.

 

Röksemd         

Hví skyldu kennarar vilja bæta þessum viðbótarverkefnum á sig eins ofhlaðnir störfum og þeir eru?  

Vegna þess að ávinningurinn af Uppbyggingu er umtalsverður, bæði fyrir nemendur og kennara:

- Uppbygging virkar!

- Hún sparar tíma þegar fram í sækir.

- Kennslan verður léttari því kennarinn getur einbeitt sér að fyrirbyggjandi atriðum og er þess vegna ekki stöðugt að glíma við truflun á kennslu og aðrar óvæntar uppákomur.

- Uppbygging styrkir skaphöfn og sjálfstraust nemenda, því:

a) þeir bera meiri ábyrgð á sjálfum sér og verða sjálfstæðari.

b) þeir læra að hafa betra vald á tilfinningum sínum, hugsunum og orðum.

c) það hjálpar þeim að gera sér grein fyrir og einbeita sér að hafa vald á eigin tilfinningalífi og hverjir þeir eru og vilja verða.

 

Hugtök sem kennd eru í Uppbyggingu falla saman við þau hugtök sem notuð eru í því sem kallað er „Nýja hagkerfið“ (New Economy).

 

Um þessar mundir erum við að kveðja iðnvæðingaröldina og ganga í gegn um upplýsingatækniöld í átt að hinu nýja hagkerfi. Samt sem áður eru ýmsar samfélagsstofnanir og fjölskyldur ennþá fastar í hugsunarhætti iðnvæðingaraldar.  Sú stjórnunarheimspeki er í algjörri mótsögn við þörfina fyrir skapandi nýbreytni í nýja hagkerfinu.

W. Edwards Deming (forgöngumaður gæðastjórnunar í Japan) sagði að ef vandamál kæmi upp í stjórnkerfi, væri 4% þess vandamáls fólkinu að kenna og 96% kerfinu sjálfu um að kenna.

Vandamál í stofnunum og fyrirtækjum eru kerfisvandamál. Það eru því 96% líkur á að vandamálin í bekknum þínum leysist ef þú velur að breyta kerfinu, viðhorfunum og hugsanaganginum. Til þess að ná árangri við að innleiða Uppbyggingu er mælt með að þú hafir að minnsta kosti farið á tveggja daga námskeiðið: Uppbygging I  (Sjá yfirlit yfir námskeið á öftustu síðu).

 

 

 

Skipulag                      

Verkið er í tveimur heftum. Annað fyrir kennara og hitt fyrir nemendur. Kennaraheftið skiptist í þrjá kafla en nemendaheftið sérhefti:

 

Kennsluleiðbeiningar: Yfirlit yfir innleiðingarferlið, víti til að varast og skilningur á því hvað þarf til að halda lífi í uppbyggingunni allt skólaárið.

 

Leiðbeiningar við innleiðingu: Kennsluáætlanir lið fyrir lið, til að kenna nemendum þínum Uppbyggingu.

 

Ítarefni: Tilbúin verkefni fyrir þig til að ljósrita handa nemendum. 

 

Nemendahefti: Nemendaheftið er einnota hefti og ætlað fyrir nemendur til að vinna verkefni í.

 

 


Tillaga að

uppröðun         

 

Mitt og þitt hlutverk.

Bjargir  (Til umhugsunar, berið saman, deilið hugmyndum).

Heilinn eins og sleikipinni.

Sá sem þú vilt vera.

Sannfæring.

Afleiðingar.

Skýr þolmörk.

Sjálfsmat. Fyrri hluti.

Grundvallarþarfir.

 Grundvallarþarfir, framhald.

  Próf.

 Stuttu inngripin.

 Fimm stöður stjórnandans.

 Að rekja á milli.

Orkupíramídinn.

 Mat bekkjarins. Fyrri hluti.

 Þú velur þér hegðun.

 Mannshugurinn sem ein heild.

 Umbun.

 Sjálfsmat. Seinni hluti.

 Skipa fyrir eða leiða áfram.

 Mat bekkjarins. Seinni hluti

Þríhornið. Rétt augnablik fyrir kennslu og nám.

Sjálfsuppbygging.

Lokamat bekkjarins.








Karfan þín

VirtueMart
Karfan þín er tóm.