Kynning

Kynning

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
magni
Útgáfufélagið Sunnuhvoll ehf var stofnað 2002 í þeim tilgangi að útvega skólum lesefni á íslensku um hugðarefni mitt sem kallaðist á kanadisku, Restitution Self Discipline.  Ég hafði skrifað bókina Treystum vor heit, fyrir kennara Foldaskóla árið áður, um þessar hugmyndir og aðferðir við að endurskipuleggja agamálin í skólanum. Bókin var afrakstur 6 mánaða námsferðar sem ég fór til Kanada í leyfi skólans og skólinn gaf hana út sem handrit í 100 eintökum. Bókin var tilraun til að semja sjálfstætt verk með því að draga saman hugmyndir úr ýmsum áttum og skyggnast þannig á bak við kennara minn og velgjörðarmann Diane Gossen. Verkið kom aldrei út fullbúið fyrir almennan markað, en ég fór þess í stað að þýða bækur eftir Diane Gossen....

Fyrsta bókin hét Uppeldi til ábyrgðar og var gefin út 2002 í 600 eintökum. Hún skiptist í þrjá kafla og voru það þýðingar á þrem þemaheftum frá Diane. Þessi bók seldist upp og var gefin út aftur 2007 aukin um einn kafla og endurbætt í útliti. Eftir fyrstu bókina komu út fjögur sjálfstæð þemahefti í ódýrum útgáfum en síðan bókin Sterk saman og þá Barnið mitt er gleðigjafi, en sú bók er einkum skrifuð fyrir foreldra.

Væntanlegt

Núna haustið 2009 koma út tvær bækur. Önnur er þýðing á bók eftir Diane en hin eftir kennarann Joel Shimoji. Þetta eru hvort tveggja bækur fyrir unglingastig grunnskólans og fyrstu árganga framhaldsskólans.

 

Uppeldi til ábyrgðar – Uppbygging sjálfsaga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Uppeldi til ábyrgðar - Uppbygging sjálfsaga (Restitution – Self Discipline) er eins og nafnið bendir til, aðferð við að kenna börnum og unglingum sjálfsstjórn og sjálfsaga. Um þetta fjalla þær bækur og rafrænar útgáfur sem félagið gefur út. Fundin er leið til að láta skólastarf ganga betur með þá vitneskju að leiðarljósi að hver og einn geti aðeins stjórnað sjálfum sér og ekki öðrum. Þetta veldur grundvallarbreytingu á hugsun margra skólamanna um aðferðir við stjórnun og meðferð agamála – breyting verður á kenniviðmiðum (paradigm-shift) skólasamfélagsins varðandi samskipti og aga. Við förum að sjá þessa hluti í nýju ljósi.

Í stað þess að reiða sig á hina gömlu hefð til stjórnunar að nota refsingar og sektarkennd og ná fram óttablandinni virðingu við sér eldri og máttugri eða hina nýrri útgáfu refsinga að stjórna með umbun, fá nemendur tækifæri og þjálfun í að líta inn á við, skoða eigið gildismat og láta það stýra framkomu sinni og hegðun allri. Áherslan verður á virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfinu.

Við trúum því að öll hegðun hafi tilgang og við séum ávallt að gera okkar besta. Slæm hegðun segjum við að sé besta tilraun manns til að uppfylla þarfir sínar.

En til að tryggja öryggi eru skýr mörk skilgreind um óásættanlega hegðun. Viðurlög eru ákveðin með víðtæku samþykki kennara og foreldra. Þá þarf enginn að vera í vafa um viðbrögð skólans þegar skýr þolmörk eru rofin. Þeim brotlega er snarlega og af festu vikið af vettvangi án umræðu, en honum gefst síðar tækifæri til að fara yfir málið og læra af mistökunum, vinna sér traust hópsins sem hann braut gegn og efla með því sjálfstraust sitt í samskiptum. Þannig verða mistök af þessu tagi tækifæri til að læra að nota betri leiðir í framtíðinni við að uppfylla þarfir sínar - leiðir sem hvorki meiða né særa. 

 

Frítt efni á vef

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

Skoða "Mitt og þitt hlutverk" pdf-skjal