Lög félags áhugamanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal




Lög félagsins Uppbygging sjálfsaga

1.gr.

Félagið heitir Uppbygging sjálfsaga og er félag áhugafólks um Uppeldi til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga og þeirra sem vilja innleiða hugmyndafræðina í vinnu með börnum og unglingum.

Skilgreining:  Með heitinu Uppbygging sjálfsaga er átt við það sem nefnt er Restitution – Self Discipline hjá höfundi hugmyndafræðinnar, Diane Gossen í Kanada.  Þetta er hvort tveggja í senn hugmyndafræði er byggir á Sjálfstjórnarkenningu dr. Glassers og aðferð í samskiptum.  Uppbyggingarstefna Diane Gossen snýst um að kenna börnum og unglingum að byggja upp innri styrk til sjálfstjórnar og sjálfsaga með það að markmiði að skapa umhyggjusamt og styðjandi samfélag.

 

2. gr.

Heimili félagsins og varnarþing er hjá formanni félagsins hverju sinni.

 

3. gr

Tilgangur félagsins er að skapa samstarfsvettvang fyrir þá aðila sem aðhyllast þessa hugmyndafræði Uppbyggingar. Einnig að standa fyrir námskeiðum, ráðstefnum og annarskonar fræðsluerindum fyrir félagsmenn og aðra áhugamenn um uppeldi til ábyrgðar.

 

4. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með þekkingaröflun á hugmynda – og aðferðafræðinni.  Félagar geta aukið þekkingu sína og hæfni með því að fara í réttindanám til að vera í forystu og kenna öðrum samkvæmt stöðlum og gæðakröfum frá Chelsom Consultants Ltd. Saskatoon í Kanada.

 

5.gr.

Þeir félagar sem halda námskeið og fræðslufundi munu leitast við að fylgja aðferðum Chelsom Consultants Ltd. við að leita ávallt bestu þekkingar, standa vörð um gæðakröfur í kennslu sinni og námskeiðahaldi, sýna sanngirni við verðlagningu og virða höfundarrétt.

 

6. gr.

Stofnfélagar eru samkvæmt sérstakri stofnfélagaskrá.

 

7.gr.

Félagið er vettvangur fyrir alla þá sem starfa með og/eða sinna uppeldisskyldum með börnum og unglingum og vilja dýpka skilning sinn á sjálfstjórnarkenningu og uppbyggingu og nýta þessar aðferðir í starfi sínu.  Stofnanir og félög geta fengið styrktaraðild að félaginu. 

 

8. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum þ.e. formanni og fjórum meðstjórnendum. Stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn.  Formaður skal kosinn sérstaklega, en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda.  Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo varamenn í stjórn og tvo skoðunarmenn reikninga.  Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. 

Daglega umsjón félagsins annast formaður eða varaformaður í umboði hans.

Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta stjórnar.

 

9.gr.

Stjórn félagsins er heimilt að skipa þriggja manna uppstillingarnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa stjórnarkjör.  Skipa skal í nefndina að minnsta kosti þremur mánuðum fyrir aðalfund. 

 

10. gr.

Starfstímabil félagsins er almanaksárið.  Aðalfund skal fyrir 1. maí  ár hvert.  Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur á aðalfundi.  Boða skal aðalfund bréflega eða með netpósti með minnst tveggja vikna fyrirvara.  Dagskrá skal fylgja fundarboði. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir aðalfund og fylgja fundarboði.  Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1.     Kosning fundarstjóra og ritara.

2.     Skýrsla stjórnar.

3.     Lagðir fram ársreikningar, undirritaðir af skoðunarmönnum félagsins.

4.     Tillögur til lagabreytinga.

5.     Kosning formanns.

6.     Kosning meðstjórnenda og varamanna.

7.     Kosning skoðunarmanna reikninga.

8.     Ákvörðun um árgjöld.

9.     Önnur mál.

Einungis þeir félagar sem hafa greitt félagsgjöld hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

 

11. gr.

Árgjald félagsins er ákveðið á aðalfundi og skal það innheimt ár hvert. 

Stofnanir sem eru styrktaraðilar greiða gjöld í samræmi við fjölda starfsmanna. 

 

12. gr.

Fjármunum félagsins skal varið til námskeiða og ráðstefnuhalds og annars þess er stjórn og félagsmenn meta mikilvægt til að félagið geti náð markmiðum sínum og tilgangi.

Stjórn félagsins er heimilt að ráða til sín starfsmann til skilgreindra verkefna.

 

 

13. gr.

Ef leggja á félagið niður þarf til þess ákvörðun 2/3 hluta fundarmanna á löglega boðuðum aðalfundi tvö ár í röð.  Ef ákvörðun verður tekin um slit félagsins skulu eignir þess renna til Chelsom Consultants Ltd. Saskatoon í Kanada.

 

14. gr.

Skráðir félagsmenn njóta réttinda sem felast meðal annars í lægri þátttökugjöldum á viðburði sem félagið stendur fyrir. 

 

 

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins og öðluðust þá þegar gildi.

 

 

Álftanesi 28. mars 2008.

Dagsetning og undirskriftir allra stofnenda eða stjórnarmanna.