| Útgáfufélagið Sunnuhvoll ehf var stofnað 2002 í þeim tilgangi að útvega skólum lesefni á íslensku um hugðarefni mitt sem kallaðist á kanadisku, Restitution Self Discipline. Ég hafði skrifað bókina Treystum vor heit, fyrir kennara Foldaskóla árið áður, um þessar hugmyndir og aðferðir við að endurskipuleggja agamálin í skólanum. Bókin var afrakstur 6 mánaða námsferðar sem ég fór til Kanada í leyfi skólans og skólinn gaf hana út sem handrit í 100 eintökum. Bókin var tilraun til að semja sjálfstætt verk með því að draga saman hugmyndir úr ýmsum áttum og skyggnast þannig á bak við kennara minn og velgjörðarmann Diane Gossen. Verkið kom aldrei út fullbúið fyrir almennan markað, en ég fór þess í stað að þýða bækur eftir Diane Gossen.... | |
Fyrsta bókin hét Uppeldi til ábyrgðar og var gefin út 2002 í 600 eintökum. Hún skiptist í þrjá kafla og voru það þýðingar á þrem þemaheftum frá Diane. Þessi bók seldist upp og var gefin út aftur 2007 aukin um einn kafla og endurbætt í útliti. Eftir fyrstu bókina komu út fjögur sjálfstæð þemahefti í ódýrum útgáfum en síðan bókin Sterk saman og þá Barnið mitt er gleðigjafi, en sú bók er einkum skrifuð fyrir foreldra. Væntanlegt Núna haustið 2009 koma út tvær bækur. Önnur er þýðing á bók eftir Diane en hin eftir kennarann Joel Shimoji. Þetta eru hvort tveggja bækur fyrir unglingastig grunnskólans og fyrstu árganga framhaldsskólans. | |


