Uppeldi til ábyrgðar - Uppbygging sjálfsaga (Restitution – Self Discipline) er eins og nafnið bendir til, aðferð við að kenna börnum og unglingum sjálfsstjórn og sjálfsaga. Um þetta fjalla þær bækur og rafrænar útgáfur sem félagið gefur út. Fundin er leið til að láta skólastarf ganga betur með þá vitneskju að leiðarljósi að hver og einn geti aðeins stjórnað sjálfum sér og ekki öðrum. Þetta veldur grundvallarbreytingu á hugsun margra skólamanna um aðferðir við stjórnun og meðferð agamála – breyting verður á kenniviðmiðum (paradigm-shift) skólasamfélagsins varðandi samskipti og aga. Við förum að sjá þessa hluti í nýju ljósi.
Í stað þess að reiða sig á hina gömlu hefð til stjórnunar að nota refsingar og sektarkennd og ná fram óttablandinni virðingu við sér eldri og máttugri eða hina nýrri útgáfu refsinga að stjórna með umbun, fá nemendur tækifæri og þjálfun í að líta inn á við, skoða eigið gildismat og láta það stýra framkomu sinni og hegðun allri. Áherslan verður á virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfinu.
Við trúum því að öll hegðun hafi tilgang og við séum ávallt að gera okkar besta. Slæm hegðun segjum við að sé besta tilraun manns til að uppfylla þarfir sínar.
En til að tryggja öryggi eru skýr mörk skilgreind um óásættanlega hegðun. Viðurlög eru ákveðin með víðtæku samþykki kennara og foreldra. Þá þarf enginn að vera í vafa um viðbrögð skólans þegar skýr þolmörk eru rofin. Þeim brotlega er snarlega og af festu vikið af vettvangi án umræðu, en honum gefst síðar tækifæri til að fara yfir málið og læra af mistökunum, vinna sér traust hópsins sem hann braut gegn og efla með því sjálfstraust sitt í samskiptum. Þannig verða mistök af þessu tagi tækifæri til að læra að nota betri leiðir í framtíðinni við að uppfylla þarfir sínar - leiðir sem hvorki meiða né særa.





